sunnudagur, 18. maí 2008

helgi að koma heim

Helgi er á leiðinni í land og ég er að reyna að fá mig til að þrífa aðeins í kringum mig. Hef verið mikið niðrí kompu upp á síðkastið. Minnir mig svolítið á búið sem ég átti þegar ég var lítil í sveitinni. Tók með mér útvarp og notast við sólstólana og garðborðið. Alveg gasalega kósí. Hringdi svo í yndislega drenginn á bylgjunni um daginn, þennan sem söng "fór á puttanum" og var að útskýra fyrir honum hvað þetta var indælt hjá mér hérna niðri eftir að ég henti öllu. Hann var svona líka uppnuminn. Soldið þungt loft þegar ég vaknaði í morgun, sofnaði óvart í gærkvöldi þarna niðri eftir kósíkvöld með sjálfri mér og símanum. Ég var búin að gleyma hvað það er gott að vera svona í myrkrinu. Ég ruglast alltaf alveg þegar það fer að birta svona. Þó að það sé auðvitað gott fyrir grasið og rollurnar og allt það þá á ekki þessi birta við mig. 
Meðmælin í þessum pistli mínum eru þau að fólk fái sér svona myrkurgardínur í svefnhebergin. Þau fást í Rúmfatalagernum og eru algjört lífsnauðsin. Er sjálf ekki búin að fá mér af því að hann Markús á lagernum í skeifu-búðinni ætlar að redda mér gölluðu eintaki, hann segir að það sé alltaf að minnsta kosti 10 % af vörunum gallaðar og við þurfum bara að bíða eftir því að einhver skili og þá fæ ég afsláttinn sem hann er búinn að lofa mér. 20% sem er starfsmannaafslátturinn hans og svo örugglega annað eins fyrir gallaða vöru. 
Verð bara hérna niðri þangað til hann hringir. Það er ekki líft í svefnherberginu með svona stóra glugga. 
Annars  sé ég svolítið eftir að hafa hent öllu draslinu núna því það er ekki mikið að gera þarna niðri nema að hlusta á útvarpið og tala í símann, eða þ.e. að segja að bíða eftir því að strákarnir á bylgjunni svari. Ég hefði getað skoðar gamlar einkunnir frá honum Kidda mínum eða eitthvað álíka, en það hefði nú eflaust bara verið til að gera mig enn þunglyndari. Er að reyna að hætta að blanda saman tegundum, ef þið skiljið hvað ég á við. 
Held að það sé nauðsynlegt áður en ég fer að taka lyfin mín aftur. Veit að ég get ekki verið að blanda svona saman öllu í maganum á mér ef ég ætla að fara á lyfin aftur. Bara að reyna þangað til það heppnast. Sakar ekki að reyna. 
Ég vildi að Helgi væri kominn aftur. Mér er alveg sama þótt að birtan ætli allt að éta hérna þegar hann er í landi. Það er að minnsta kosti einhvern að tala við á meðan. 
Ælta að raka á mér fótleggina á morgun. Ef ég kem mér til þess. Og ef ég finn rakgræjurnar. Orðið svolítið langt síðan síðast. Verð að vera sæt fyrir Helga. Annars verður hann ekki hress. 
Guði sé lof fyrir það samt að hann er ekki nema í viku í landi. Ég gæti ekki umborið það að vera alltaf að hafa mig til án þess að fá að taka svolitlar pásur inn á milli. 
En, ég er alla veganna hress. Ætla að fara með nokkra bjóra niður í kompu. Búinn að finna svona lampa með SPARperu í út útilegukassanum hans Helga sem ég get notað. Kannski les ég eitthvað. 
Vona að þessi Guðni Már Hannesson sé ekki í útvarpinu í kvöld. Hann spilar alltaf svo skrítna tónlist. Svo er hann líka dónapungur þegar maður hringir. Mig langaði að lemja hann í gegnum símann, var í miðri setningu og hann bara... Það er víst kominn tími á lag. eitthvað leiðina lag. og svo skellti hann á mig. það eru peningarnir mínir sem borga launin hjá þessum durgi og svo kann þetta lið ekki einu sinni að vera kurteist. 
Ef ég nenni á morgun þá skrifa ég bréf. Bara til yfirmanns hans. skamm skamm skamm. 
farin í kompuna. 

Engin ummæli: