Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt. En ég veit ekki alveg hvað ég á að segja svona í fyrstu.
Bíðið aðeins. Ætla að ná mér í hvítvínsglas og sjá hvort það eykur ekki á frjóleikann í gömlu sellunum.
Komin aftur.
Sígó og hvítvínsglas eru ótrúleg þegar kemur að því að losa um hömlur. Mæli með því.
Datt í hug að segja ykkur frá atviki sem ég lenti í fyrir skemmstu. Er á leiðinni niðrá tryggingastofnun til að greiða úr smá flækjum, og ákveð að taka strætó. (Frekar en leigubíl, þið skiljið) Það er nú einu sinni komin kreppa. Þeir segja það alla veganna.
Nú nema hvað. Ég er þarna í strætó og það koma þarna einhverjir unglingar með læti og kjaft eins og venjulega, það er þess vegna sem ég tek aldrei strætó; allt of mikil læti fyrir mig. Hvað sem því líður þá bið ég ormana að lækka aðeins niður í sér. Þarna er kona af erlendu bergi brotin með barnavagn og örugglega lítill nýbúi að reyna að sofa í vagninum og ég fann að ég þurfti nú að reyna að lækka niður í unglingunum sem ætluðu ekki að virða annað fólk frekar en fyrri daginn, og viti menn. Þeir gáfu mér fingurinn. FINGURINN. Ég er er þarna alsaklaus kona á besta aldri, held því samt fyrir utan þessa ...
Ætla að ná í annan sígópakka. Bíðiði aðeins.
Komin. búin að setja Björgvin á og allt. Þetta er bara gaman. ha?
Hvar var ég???
Já, í stætó og þeir bara ota fingrinum framan í mig og halda svo áfram að hlæja og láta öllum illum látum. Ég bara segi aftur og enn, eins og ég hef gert fram að þessu... þessir ólátabelgir eiga bara að vera bannaðir í strætó. Geta foreldrar ekki bara haldið svona skrímslum heima fyrir.
Verdum friðinn í strætó.
Kv. Nína Hressa.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli